Starfsmenn okkar leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum persónulega og góða þjónustu. Á stofunni starfa lögfræðingar með víðtæka reynslu af öllum almennum lögfræðistörfum.

Meðal viðfangsefna stofunnar eru erfðaréttur, félagaréttur, forsjármál, innheimtur, leiguréttur, málflutningur, sakamál, samninga- og kröfuréttur, skattaréttur, sjávarútvegs- og hafréttarmálefni, skaðabótaréttur, kaupmálar, skilnaðarmál, skipti dánar- og þrotabúa, stjórnsýsluréttur, vátryggingaréttur, vinnuréttur og verktakaréttur.

Markmið okkar er að veita viðskiptavinum faglega og persónulega þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög, banka eða einstaklinga hér á landi sem og erlendis.